Hvað fær maður í höndunum?

Úr hverju er viðarbotninn?

Eftir því hvaða stærð þú velur og hvort þú velur standandi botn eða veggfestingu, er viðurinn meitlaður, pússaður, olíuborinn og laser-grafinn með 3dKort lógói og staðarheitin á bakhliðinni.

Minni verkin eru 10x10 cm úr gegnheil furu en stærri verkin eru 20x20 cm úr gegnheil eiki.

Get ég valið annan lit en gráan?

Já! Landslagið kemur í gráum lit (PLA-plast) en í kaupferlinu getur þú valið um hvítan, gráan, dökkgráan eða svartan lit á kortið þitt.

Hvernig hangir veggfestingin uppi?

Veggramminn er örlítið stærri en sjálft kortið og er með skráargatsopi á bakhliðinni svo einfalt er að hengja hann á skrúfu eða nagla (skrúfur og tappar fylgja ekki). 

Festingin á bakhliðinni miðast við að norður snúi upp. Ef þú óskar eftir annarri stefnu getur þú heyrt í okkur áður en þú pantar og við aðlögum hönnunina.

Af hverju tekur framleiðslan 5–8 virka daga?

Sérsmíðaða kortið þitt er samsett úr mörgum mismunandi einingum sem allar eru hannaðar, framleiddar og fullunnar frá grunni út frá þinni einstöku hönnun.

Ef þú ert í tímapressu mælum við með að skoða úrvalið okkar af tilbúnum kortum sem eru nú þegar til á lager og klár til afhendingar.

Hversu nákvæmt er landslagskortið?

Við notum nákvæmum optískum stereo myndum frá ArcticDEM sem er verkefni á vegum Polar Geospatial Center við University of Minnesota. Gögnin mæla íslensk gljúfur, jökla og landslag af millimetranákvæmni. Þú getur lesið meira um kortagögnin og ArcticDEM verkefnið hér.

Oft keypt saman