Hafa samband

Hér fyrir neðan er hægt að skila eftir skilaboð og við höfum samband við þig eins fljótt og við getum.

Spurt og svarað

Sendið þið til...?

Mjög líklega er svarið já. Við bjóðum upp á sendingum með Dropp og Pósturinn.

Hvenær fæ ég pöntunina mína?

Tilbúnar vörur eru sendar af stað innan 1–2 virkra daga. Sérpöntuð landslagskort eru framleidd frá grunni og er afgreiðslutími þeirra 5–8 virkir dagar áður en vörurnar eru sendar. Afhendingartími ræðst af áfangastað og valinni flutningsþjónustu, en hægt er að fylgjast með stöðu sendingarinnar með rakningarnúmeri.

Hver er skilafresturinn?

Ekki er hægt að skila eða skipta sérpöntuðum vörum þar sem þær eru sérsmíðaðar út frá óskum hvers viðskiptavinar. 30 daga skilafrestur gildir um aðrar vörur í vefverslun, svo framarlega sem þær eru óskemmdar og í upprunalegu ástandi. Kaupandi ber kostnað af skilasendingu.

Bjóðið þið upp á B2B lausnir fyrir fyrirtæki?

Já! Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni fyrir fyrirtæki, svo sem starfsmanna- og jólagjafir, verðlaunagripi og minjagripi fyrir viðburði. Einnig útvegum við hótelum og fyrirtækjum skrautmuni í herbergi og móttökur. Endilega sendu okkur fyrirspurn á 3dkort@3dkort.is og við finnum réttu lausnina saman.

Af hverju lítur fullbúin vara stundum öðruvísi út en á vefsíðunni?

Forskoðunarmyndir á vefsíðunni gefa góða hugmynd um lokaútlitið, en náttúruleg einkenni viðarins og handverkið sjálft gera hverja einustu vöru einstaka. Því getur fullbúin varan verið örlítið frábrugðin myndinni á vefsíðunni.

Are there customs duties for deliveries to Europe or USA?

Yes. We ship and sell from Iceland, which means that import duties and taxes may apply according to the laws of the destination country.

Hvar eru vörurnar framleiddar?

3dKort er lítið fjölskyldufyrirtæki í Reykjavík. Við hönnum og framleiðum allar okkar vörur frá grunni með ástríðu fyrir íslensku handverki og náttúru.

Hver er sendingarkostnaðurinn?  

Sendingarkostnaður ræðst af stærð, þyngd og áfangastað sendingarinnar. Auðveldasta leiðin til að sjá nákvæman kostnað er að bæta vöru í körfuna og fara í greiðsluferlið.